Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Sumarhúsið – Lífstíll, er áhugasöm um ansi margt þegar kemur að mannfólki og menningu. Hún gaf út bæjarblaðið Hafnfirðing og kynntist þá fjölmörgu jákvæðu og uppbyggjandi fólki. Það veitti henni mikla ánægju að miðla sögum þess og hún heldur áfram að hvetja aðra og vera uppörvandi í hlaðvarpinu Plássið og á Facebook-síðu sinni. Okkur lék forvitni á að vita hvað kona sem hefur svo víðan sjónarhól væri að lesa.