Gestgjafinn kíkti í heimsókn í Vesturbæinn til leikkonunnar Aldísar Amah Hamilton á dögunum og fékk að smakka á dásamlegri köku úr hennar smiðju. Kökunni lýsir hún sem haustlegri og með óvæntu tvisti. Aldís hefur gaman af því að gera tilraunir í bakstri og stefnir á að gera meira af þeim á næstu misserum.