Heimili vöruhönnuðarins Birtu Rósar Brynjólfsdóttur er algjör ævintýraheimur. Birta er mikill safnari og áhugaverðir hlutir sem flestir koma af nytjamörkuðum prýða hvern krók og kima heima hjá henni. Endurnýting er henni hugleikin, ekki bara þegar kemur að heimilinu heldur einnig í hönnun hennar.