Fyrr í sumar var spennandi staður opnaður við Snorrabraut 56, sem heitir Bruggstofan og þar er handverksbjór og djúsí BBQ-matur í aðalhlutverki. Við kíktum nýverið í heimsókn og fengum að kynnast staðnum betur og helstu áherslum í matargerð. Það vekur athygli hversu fjölbreyttur matseðillinn er þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem viðkomandi er grjóthörð kjötæta, grænkeri eða einhvers staðar þar á milli.