Óhætt er að segja að við Íslendingar séum grillþjóð enda margir sem nýta hvert tækifæri sem gefst til að kveikja undir grillinu og sumir sem grilla í öllum veðrum og vindum. Það er þó eitthvað notalegt við að grilla í góðu veðri og vonum við hér á ritstjórn Gestgjafans að sumarið verði okkur hliðhollt í þeim efnum því eftir að hafa undirbúið og smakkað réttina í þessum þætti þá munum við svo sannarlega nýta grillið vel á næstunni. Við bjóðum hér upp á framandi og fremur einfalda grillrétti sem gefa þó ekkert eftir í bragði.