Grillsumarið og golfsumarið er hafið og því höfum við hvorki meira né minna en þrjá úrvals grillþætti í blaðinu. Jóhanna Hlíf okkar útbjó nokkur einföld og bragðgóð grillspjót. Hún framreiddi kjúklinga-, lamba- og grænmetisspjót með tzatziki-sósu ásamt eftirréttaspjótum og gljáðum gulrótum sem eru spennandi nýjungar í sumar.