Í apríl fór ég ásamt fjölmörgum Íslendingum í golfferð til Spánar. Áfangastaðurinn að þessu sinni var Alicante og golfvöllurinn sem varð fyrir valinu heitir einfaldlega Alicante Golf en þess má geta að fjölmargir golfvellir eru í Alicante og í Valencia-héraðinu ásamt nýjum og rótgrónum veitinga- stöðum, menningarstöðum, strönd og skemmtun.