Að kynnast góðum gaur sem væri bara að leita sér að hjásvæfu var það sem ég hafði verið að vonast eftir. Ég varð því ansi kát þegar ég hitti Alex, sem var í sömu sporum. Ég hafði enga ástæðu til að rengja neitt sem hann sagði um sína einkahagi þótt innsæið hvíslaði að mér að skoða málin aðeins betur.