Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors
dflip
post
dflip

„Forréttindi fullvalda þjóða að fá að taka þátt í alþjóðasamfélaginu“

Hildur Hjörvar laganemi við Harvard Law School dúxaði bæði í B.A. og á meistarapróf í lögfræði við Háskóla Íslands.  Hildur varð einnig fyrst til að vinna öll verðlaun sem veitt eru fyrir námsárangur við lagadeildina, besta meistararitgerð og besti árangur á 1. ári. Hildur hefur setið í ýmsum ráðum og nefndum og segist sérstaklega hafa tekið eftir því hversu sterkar skoðanir á samfélaginu ungt fólk hafi og vilji fá að taka þátt í að móta það. Hún hefur tekið þátt í alþjóðasamstarfi og ferðast víða en heilt yfir það sem hefur mótað hana sennilega mest er að upplifað það hvað fólk er gott. Alls staðar þar sem hún fór var fólk boðið og búið að aðstoða hana og leiðbeina. Hún segir það hafi verið sérstaklega kærkomið vegna þess að hún ferðaðist mikið á afskekktum slóðum, netlaus og áður en hægt var að vera með þýðingarvél í lófanum.Hildur er afburðanemandi en segist þó alltaf hafa verið hrædd við að berskjalda sig. Hún hafi verið hrædd við að misheppnast sem myndi draga skugga á þann árangur sem hún hafði þegar náð.

Á milli stríða fann hún ástina í sumarfríi en tíminn var naumur þar sem hún var með takmarkaðan tíma í frí. Þá þýddi ekkert annað en einhvers konar stefnumótahraðall. Í framtíðinni sér Hildur fyrir sér að vinna áfram að þátttöku Íslands í alþjóðasamstarfi í einhverju formi. Hún hefur hins vegar tekið eftir því að Íslendingar séu stundum skeptískir á að taka almennilega þátt á alþjóðavettvangi. Henni finnst við horfa mikið á kostnaðinn og efast um þau áhrif sem við getum haft. En henni finnst til dæmis aðild Íslands að mannréttindasáttmála Evrópu vera eitt mesta heillaskref sem við sem lítil þjóð höfum stigið.

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.