Þær Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir hafa alltaf haft brennandi áhuga á mat og matargerð. Þær stukku á tækifærið í breyttu landslagi vegna COVID í fyrra og settu á laggirnar veitingaþjónustuna Sónó Matseljur. Hugmyndin vatt upp á sig og í dag er Sónó rekið sem grænmetisstaður í Norræna húsinu.