Þegar The Academy of Motion Picture Arts and Sciences bað Sacheen Littlefeather afsökunar á ofbeldi og illri framkomu sem hún mátti þola á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 1973 urðu margir hissa en aðrir sögðu betra er seint en aldrei. Það var Marlon Brando sem ákvað að senda hana í sinn stað á hátíðina til að hafna styttunni ef hún kæmi í hans hlut. Pólitískt ástand í landinu var viðkvæmt á þessum tíma og koma Sacheen upp á svið var mjög umdeild.