„Skyndikynni eru eins og að spila í happdrætti. Annaðhvort ertu heppin/n með dráttinn eður ei. Oftar en ekki hefur vín verið haft um hönd og það hefur áhrif á frammistöðuna. Svo eru þetta yfirleitt ókunnugir einstaklingar sem getur þýtt að maður er stressaður og stendur sig þess vegna ekki alveg í stykkinu.“