Ef til væri bók yfir afsakanir karla þegar þeir eru að reyna að draga fjöður yfir ömurlega framkomu sína við konur væri sú versta þar á blaði: „Ég er bara ekki tilbúinn í samband og vil ekki særa þig.“ Ég fékk að heyra einmitt þessa fáránlegu setningu um daginn og á mjög bágt með að fyrirgefa manninum sem bar hana fram.