Ásdís Ásgeirsdóttir er blaðamaður á Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Hún hóf störf hjá Morgunblaðinu árinu 1995 en þá sem blaðaljósmyndari og vann við það í 12 ár áður en hún fór að starfa við blaðamennsku. Hún skrifar mikið stór viðtöl og alls kyns lífsstílsgreinar og myndar sjálf fyrir sínar greinar. Hún segist fá útrás fyrir sköpunarþörf sína með því að skrifa og taka myndir og svo séu það mikil forréttindi að fá að kynnast mörgu áhugaverðu og skemmtilegu fólki í gegnum starf sitt.