Birta Pálmarsdóttir býr í Tbilisi í Georgíu ásamt eiginmanni sínum, Ívari Schram, og dætrum þeirra tveimur, Snæfríði og Júlíu. Þau fluttu til Tbilisi í janúar 2021 eftir að hafa búið í hálft ár á Bahamaeyjum vegna vinnu Ívars en hann starfar fyrir Alþjóðasamband Rauða krossins. Þar mætti segja að ævintýraþráin hafi kviknað.