Snillinginn Albert Eiríksson þarf ekki að kynna fyrir landsmönnum, enda hefur hann árum saman kennt okkur að elda gómsæta rétti og baka dásamlegt meðlæti með kaffi, frætt og skólað marga til í borðsiðum og kurteisi. Nú nýlega ungmenni sem hann býður upp á námskeið fyrir. Sömuleiðis ferðast hann gjarnan um, flytur fyrirlestra um efnið en stundum heyrist að Íslendingar hafi gott af að læra betri siði hvað varðar mat. Hann og maðurinn hans, Bergþór Pálsson söngvari, taka svo einnig að sér að halda veislur þar sem bestu siðir eru í hávegum hafðir.