Madeira er portúgölsk eyja í Atlantshafi og við miðbaug þar sem er gott veður allan ársins hring. Veðrið gerir eyjuna að kærkomnum áfangastað fyrir okkur sem höfum lítið séð til sólar í sumar og langar að ferðast á nýjan áfangastað. Hinn heimsfrægi Cristiano Ronaldo er uppalinn á eyjunni sem hefur upp á svo margt að bjóða en þar má nefna stórkostlega náttúru, siglingar og vínsmökkun. Madeirabúar eru stoltir af fiskinum og suðrænu ávöxtunum sem þeir rækta á eyjunni. Madeira í maí er sérlega eftirsótt því þá er haldin blómahátíð og öll stræti og götur skreytt og þakin blómum. Það er því nóg að gera á eyjunni allan ársins hring.