Ísland er þekkt á heimsvísu fyrir ógrynni náttúrulauga- og heitra baða. Íslenska sund- og heita pottamenningin er ævaforn og engri lík, enda ekki skrýtið þegar nóg er af jarðhita og heitu vatni til að svamla í. Þó vinsældir manngerðra lauga og heilsulinda fari vaxandi jafnast ekkert á við að baða sig í sannri, íslenskri náttúrulaug. Við tókum saman helstu náttúrulaugarnar á landinu, hvar þær er að finna og hvernig er best að komast þangað í sumar.