Vúhú! Ykkar einlæg hefur nú verið bólusett fyrir þessari leiðinda kórónupest og stefnir á að fara utan hið fyrsta eftir langa pásu frá utanlandsferðum. Eitt af því sem ég hlakka mest til að geta gert þegar lífið kemst aftur í eðlilegt horf er að fara til Berlínar og heimsækja stórskemmtilegan kynlífsklúbb þar í borg sem ég fór á fyrir nokkrum árum.