Þegar bakað er fyrir barnaafmæli er gott að hafa eitt hugfast: Í langflestum tilfellum borða börnin lítið sem ekkert af veitingunum ef frá er talið kökukrem og nammi sem er kroppað ofan af afmæliskökunni. Þetta er gott að muna þegar gestgjafar eru við það að missa svefn yfir undirbúningnum. En svo getur líka verið gott að eiga nokkrar einfaldar og fljótlegar uppskriftir í bakhöndinni sem hægt er að grípa til og jafnvel útbúa með dálitlum fyrirvara…