Hún hefur nokkrum sinnum staðið andspænis dauðanum, glímt við sjúkdóma sem barn og fullorðin kona, skilið við eiginmann sinn til 27 ára og fundið stóru ástina en svo misst í erfiðum og sorglegum veikindum. Allt segir hún þetta vera dýrmæta reynslu sem hjálpi henni í starfi sínu sem miðill og heilari, hún skilji fólk betur, þökk sé henni. Sorgir og sigrar, ástir og dauði hafa litað líf Guðrúnar Kristínar Ívarsdóttur.