Elín Hanna Ríkarðsdóttir er 26 ára förðunarfræðingur sem ólst upp í Hafnarfirði en er með sterkar rætur út á landsbyggðina. Hún nældi sér í sveitastrák fyrir tæpum sex árum síðan og þau eiga að hennar sögn dásamlega fallegt og litríkt líf saman. Elín Hanna lærði förðun í Mask Makeup Academy og tók síðar framhaldsnámskeið í listrænni förðun. Hún er einnig menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. „Mér finnst það frekar skemmtileg staðreynd svona miðað við að í menntaskóla tók ég sérstaklega fram að ég ætlaði sko aldrei í viðskiptafræði,“ segir hún kát í bragði. Hún starfar í dag sem sminka í leikgervadeild Þjóðleikhússins og tekur að sér alls konar skemmtileg förðunarverkefni, til að mynda fyrir Vikuna. Samhliða því vinnur hún í bókunardeild og sér um samfélagsmiðla á Hótel Langaholti á Snæfellsnesi.