Generic selectors
Exact matches only
Search in title
Search in content
Post Type Selectors
dflip
post
dflip

„Afleiðingar stéttaskiptingar og áhrif auðmagns á heilsu.“ 

Sigrún Ólafsdóttir er uppalin á Höfn í Hornafirði af móður sinni, afa og ömmu, þeim Svövu Kristbjörgu Guðmundsdóttur, Guðmundi Jónssyni og Sigrúnu Eiríksdóttur. Sigrún segist hafa tekið allar meginákvarðanir lífs síns þegar hún var tíu ára gömul, þar með talið að fara í Menntaskólann við Sund og í sem allra lengst háskólanám. Þannig að þegar hún var orðin sautján ára flutti hún til Reykjavíkur til að hefja nám á félagsfræðibraut í MS og fór í kjölfarið í félagsfræði í Háskóla Íslands. Sigrún lauk BA-námi frá HÍ árið 1998 og vann í eitt ár að félagsfræðirannsóknum hér á Íslandi, meðal annars fyrir Þórólf Þórlindsson, prófessor í félagsfræði, en hann leiðbeindi henni í BA-ritgerðinni sinni sem fjallaði um sjálfsvígshegðan ungs fólks. Haustið 1999 var síðan komið að því að flytja til Bandaríkjanna en þegar hún fór út var hún alveg gallhörð á því að þar myndi hún einungis búa í fimm ár og flytja strax heim að námi loknu. Sú varð hins vegar ekki raunin og átti hún eftir að búa þar næstu sautján árin við nám og störf. Leiðin lá fyrst í Indiana háskólann en á þeim tíma var skólinn á meðal þeirra tíu sem buðu upp á nám í félagsfræði þar í landi. Hún lauk MA-gráðu í félagsfræði árið 2002 og síðan doktorsgráðu vorið 2007. Doktorsritgerðin fjallaði um sjúkdómsvæðingu geðrænna vandamála og þá sérstaklega hvernig og hvers vegna þau voru sjúkdómsvædd í vestrænum iðnríkjum. Þar beindi hún sjónum að því hvernig hugmyndir og viðbrögð samfélaga við geðrænum vanda mótast af alþjóðlegum hugmyndum innan geðheilbrigðisgeirans, en líka hvernig þessar hugmyndir eru samþykktar, þeim hafnað eða þær aðlagaðar innan hvers samfélags. Hún var valin besta doktorsritgerðin sem skrifuð var í öllum greinum við Indiana háskólann árið 2007 og besta ritgerðin sem var skrifuð í geðheilsufélagsfræði í Bandaríkjunum sama ár.  

Þessa grein ásamt öllu öðru efni sem birtist í tímaritum Birtíngs getur þú lesið með því að gerast áskrifandi - Prófaðu frítt í 7 daga

Aðgangur að öllum tölublöðum Birtíngs

Lestu greinar og skoðaðu tölublöðin hvar og hvenær sem er

Með áskrift að vef Birtings getur þú lesið greinar og tölublöð þegar þér hentar. Þú getur einnig vistað tölublöðin á tækið þitt fyrir ferðalagið.