Áslaug Snorradóttir, ljósmyndari og matarlistamaður með meiru, bauð góðum vinkonum til sín í standandi boð á kvennréttindadaginn 19. júní. Eirný Sigurðardóttir, ostadrottning og matreiðslumeistari, sá um matargerðina og Áslaug framsetti. Áslaug og Eirný eiga saman fyrirtækið Icelandic Picnic þar sem þær fara með fólk í upplifunarferðalag. Boðið var vel útilátið og með eindæmum viðeigandi fyrir þennan dag kvenna.