Skömmu eftir að ég útskrifaðist úr háskóla fékk ég vinnu hjá stóru fyrirtæki. Þar var í yfirmannsstöðu myndarlegur og skemmtilegur maður sem við skulum kalla Gumma. Hann var giftur og ég í sambúð með virkilega góðum strák. Milli okkar neistaði og við áttum í sex mánaða ástarsambandi sem endaði mjög illa fyrir mig.