Vilhjálmur Sigtryggsson fæddist 6. maí 1931 í Reykjavík og ólst þar upp. „Ég man eiginlega fyrst eftir mér á hnakknefinu hjá pabba. Hestarnir áttu alltaf hug minn og hjarta þegar ég var barn. Pabbi gaf mér hryssu þegar ég var um fermingu, sem ég kallaði Grásu. Hún var skemmtilega viljug og ég ferðaðist mikið á henni um Skeiðin. Ég flutti austur á Votumýri þegar ég var 9 ára og var þar hjá frændfólki mínu til 14 ára aldurs. Ég var mikið í íþróttum sem barn, bæði í sundi og frjálsum. Þegar ég var 14 ára flutti ég aftur til Reykjavíkur til foreldra minna og pabbi byrjaði þá fljótlega að byggja Eskihlíð 5, þangað sem við fluttum fjölskyldan.“