Íris Ann Sigurðardóttir er lífsglöð og skapandi. Hún hefur menntað sig í ljósmyndun og sjónlist og verið mikið í eigin rekstri ásamt myndatökum og listsköpun fyrir ýmis fyrirtæki og einstaklinga, en þar liggur hennar ástríða. Hún rak veitingastaðinn Coocoo’s Nest í áratug og stóð einnig fyrir rekstri nokkurra kaffihúsa. Hennar mesta hamingja er fjölskyldan en hún á tvo drengi, Sky og Indigo, og segist vera mjög vel gift honum Lucasi Keller, en hann er frá Kaliforníu og þekktur fyrir að elda einstaklega góðan mat.