Þegar hausta tekur og fegurð haustlitanna umvefur okkur í kaldara loftslagi með ilm árstíðarinnar í vitum. Sólin nær að brjótast út á milli skýjanna á góðum degi. Hún ýkir litina enn frekar og veitir það mörgum innblástur til sköpunar þar sem fagurlituðum laufblöðum í allskonar lögun er safnað og meðal annars gerður úr þeim krans.