Í litríkri íbúð í Vesturbænum á Anna Scarlett, sem er tveggja ára, skemmtilegt herbergi. Nýverið settu foreldrar hennar upp lítið skrifborð fyrir hana þar sem hún situr gjarnan og spilar á litla píanóið sitt. Mamma Önnu Scarlettar, Elsa Kjartansdóttir, nýtti margt úr æsku sinni þegar kom að því að breyta fönduraðstöðu heimilisins í barnaherbergi en það má segja að nostalgían hafi ráðið för þegar kom að hönnun herbergisins.