María Cristína Kristmanns er skvísa með algert blæti fyrir náttúru og tindum en fjallgönguáhuginn kviknaði fyrir um fimm árum síðan þegar hún áttaði sig á því að hún væri lítið búin að skoða landið sitt. María starfar sem aðstoðarkona framkvæmdastjóra snyrtivöru hjá Artica, stundar nám í hagfræði við Háskóla Íslands og gengur fjöll í frítíma sínum. Við spurðum hana aðeins út í gönguáhugann og fengum hana til þess að taka saman óskalistann sinn.