Aníta Hirlekar og Magnea Einarsdóttir fatahönnuðir opnuðu í sumar nýja og glæsilega verslun sína á Hafnartorgi og við litum í heimsókn. Kvenlegur stíll þeirra beggja fer vel saman við hráleika verslunarinnar en Aníta sérhæfir sig í blómlegu prentmynstri og Magnea í prjóni. Þær leggja nú lokahönd á flíkur fyrir næsta haust og vetur sem verður spennandi að sjá.