Við Suðurgötu í Hafnarfirði stendur hvítt, bárujárnsklætt timburhús frá árinu 1884. Anthony Bacigalupo og Ýr Káradóttir festu kaup á íbúðinni á efri hæðinni fyrir tæpum tíu árum síðan og neðri hæðinni nokkrum árum seinna sem þau hafa gert að gistiheimili en í garðinum hafa þau skapað sína eigin sveit í borg.