Sumarið er tíminn þegar hjartað verður grænt og við njótum þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða. Sumarhúsin og sundlaugarnar koma fólki saman og skapa dýrmætar minningar. Árið 2023 var sundmenning Íslendinga tilnefnd á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns sem við teljum að sé svo sannarlega raunin en við köfum dýpra í nokkrar laugar um landið.