Arna Hauksdóttir er prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og aðalrannsakandi í rannsókninni Áfallasögu kvenna ásamt Unni Önnu Valdimarsdóttur, prófessors við læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknir Örnu hafa einkum beinst að áhrifum áfalla, til dæmis ástvinamissis og náttúruhamfara, á andlega og líkamlega heilsu. Í júlí 2019 lauk fyrsta fasa gagnaöflunar og höfðu þá 31.780 konur tekið þátt með því að svara rafrænum spurningalista. Væntingar standa til þess að niðurstöður rannsóknarinnar verði síðar hægt að nota til forvarna og meðferðar við alvarlegum heilsufarsáhrifum áfalla. Blaðamaður ræddi við Örnu um rannsóknina, eftirfylgdina og nýja rannsókn sem ber heitið Lóa – rannsóknin eftir vorboðanum ljúfa.