Ítalía er stórfenglegt land með ríka sögu, menningu og listir. Feneyjar eru á heimsminjaskrá UNESCO sem merkir að staðurinn er álitinn hluti af menningararfi mannkyns. Menning og listir vantar ekki í Feneyjum en þar ætti fólk að geta notið Cicchetti, aperitivo, og mannlífsins með því. Dvöl við Gardavatn ætti að einkennast af góðum mat og skoðunarferðum um nærliggjandi bæi sem eru hver öðrum fegurri. Hér höfum við nokkra staði sem er vert að heimsækja á ferð um Ítalíu.