Við hitum upp fyrir HönnunarMars með því að heyra í hönnuðum og arkitektum sem verða með fjölbreyttar og forvitnilegar sýningar á hátíðinni í ár. Viðburðir og samtöl veita þátttakendum og gestum innblástur og innsýn í nýjar lausnir og skapandi hugmyndir sem takast á við áskoranir samtímans. Hátíðin er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið.