Alexandra Sif Tryggvadóttir, hlaðvarpsframleiðandi hjá Spotify, býr í Brooklyn, New York, ásamt unnusta sínum en hún á rætur að rekja til Los Angeles. Lífsstíllinn í LA er afslappaður en hraði New Yorkborgar er engu líkur. Alexandra er nýflutt til New York eftir að hafa búið í níu ár á vesturströndinni, hún er óhrædd við framandi rétti á matseðli og er mikill sælkeri að eigin sögn. Hér gefur hún okkur sín bestu meðmæli varðandi mat og drykk í þessum stórborgum.