Matar- og ævintýrabloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir er mörgum okkar kunn en hún heldur úti heimasíðunni Gotterí og gersemar. Síðan er að því er virðist ótæmandi uppspretta góðra uppskrifta og hefur reynst mörgum áhugabökurum mjög vel í gegnum tíðina. Berglind hefur mikinn áhuga á bakstri og matseld en einnig ferðalögum, útivist, fjallgöngum, veisluhöldum, ljósmyndun og almennu brasi með fjölskyldunni sinni. „Ég hef verið að sniglast í eldhúsinu síðan ég man eftir mér. Ég var alltaf að baka og gera eitthvað upp úr tímum í matreiðslu í grunnskóla og þegar ég var tvítug og nýfarin að búa var ég manneskjan sem bauð öllum vinum okkar í „ömmuhrygg“ með gljáðum kartöflum og tilheyrandi,“ segir hún og hlær.