Hjónin Helga Sigrún Gunnarsdóttir og Daníel Sveinsson keyptu þetta formfagra móderníska raðhús í Laugardalnum haustið 2019. Jólin voru sérlega eftirminnileg það árið í miðjum framkvæmdum með þá jólaósk að komast í eigin svefnherbergi fyrir jólin. Jólin eru nefnilega alls konar en það sem mestu skiptir er að verja tíma með fjölskyldu og vinum, sama hvernig ástandið er á heimilinu.