Í útsýnisíbúð í Salahverfi í Kópavogi býr Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni á menntasviði Kópavogsbæjar, ásamt eiginmanni sínum, Baldri Dýrfjörð lögfræðingi. Þau hjónin tóku íbúðina í gegn árið 2021 með hjálp Svölu Jónsdóttur, innanhússarkitekt og dóttur þeirra. Jólin koma brátt en þá kemur fjölskyldan saman heima hjá þeim enda hvergi betra útsýni yfir jól og áramót.