Döðlur eru magnað hráefni og ótrúlega orku og næringarríkar, meðal annars af trefjum, andoxunarefnum og fjölda vítamína og steinefna. Fyrir þau sem vilja nota náttúrulegri sætu í baksturinn eru döðlur tilvaldar en þær gefa einnig mjög góða áferð í baksturinn. Hér má finna litlar dúnmjúkar döðlukökur með karamellusósu, hráa gulrótarköku, hráa kanilrúllu og ómótstæðilegt súkkulaðikrem gert úr döðlum og hráu cacao sem hægt er að smyrja á hvaða köku sem er eða einfaldlega borða með skeið.