Fátt toppar ilminn af nýbökuðum smákökum. Það gæti eiginlega ekki verið auðveldara að töfra fram smákökur með kaffinu þegar til er deig í frysti sem má skera niður í nokkra bita og stinga inn í ofninn í örfáar mínútur. Hér er meira að segja hægt að komast langt með að baka fyrir hátíðirnar og dunda sér svo við baksturinn án þess að vera í óþarfa stressi. Deigið geymist í frysti í allt að þrjá mánuði ef því er pakkað vel inn í plastfilmu…