Flest þekkjum við tilfinninguna að þurfa örlítinn bita til að ná upp orkunni yfir daginn. Í sumum tilfellum seilumst við í sætindi svo það er ágætt að eiga eitthvað í hollari kantinum í bakhöndinni þegar þörfin kallar. Orkuboltarnir eru afskaplega fljótlegir en þá má líka útbúa í stórum skömmtum því þeir geymast vel í frysti í loftþéttum umbúðum.