Við konan mín höfum verið í hamingjuríku og góðu hjónabandi í 30 ár og börnin okkar ólust sannarlega ekki upp við ósamkomulag og rifrildi. Þeim var kennt að ofbeldi leysir engan vanda. Það kom okkur því mjög á óvart þegar við komumst að því að eldri dóttir okkar hafði búið lengi við alvarlegt ofbeldi af hendi manns síns sem við dáðum. – Lífsreynslusaga Vikunnar