Leikkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir, eða Ragga Ragnars, er nýlent á Íslandi eftir kærkomið frí í Kanada. Hún stoppar þó stutt við því fram undan eru tökur á sjónvarpsþáttunum Wheel of Time í Prag. Hún ákvað ung að setja stefnuna á Ólympíuleikana í sundi og afhendingu Óskarsverðlaunanna. Annað hefur hún þegar áorkað, hitt á hún eftir. Miðað við hvert lífið hefur leitt hana hingað til er ekki annað hægt en að trúa því að hún muni einn daginn ganga dregilinn eftirsóknarverða. Í dag er hún samt sátt með sitt, glöð og þakklát fyrir að vera að vinna við það sem hún elskar og lætur sig dreyma um: Að mastera súrdeigsbakstur. En hver er Ragga Ragnars?