Alla tíð síðan þegar ég hef flutt á milli staða í borginni hefur það verið fyrir tilstilli einhverra tengsla, vina eða vandamanna sem redduðu mér og mínum íbúðum með einhverjum leiðum. Leigan var samt alltaf há en í þá daga var ekki þorri íbúða á höfuð borgarsvæðinu notaður undir skammtímaleigu og skjótan gróða eins og staðan er í dag.