Hulda Hólmkelsdóttir er Lesandi Vikunnar. Hulda, sem er verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjórnar hjá Reykjavíkurborg, er nýfarin aftur til vinnu eftir fæðingarorlof. Hulda er menntaður stjórnmálafræðingur sem finnst fátt betra en að lesa góða bók, prjóna falleg föt og njóta gæðastunda með konu sinni og dóttur.