Fröken Reykjavík Kitchen & Bar inni á Hótel Reykjavík Sögu er nýr og glæsilegur veitingastaður þar sem lögð er áhersla á ný-evrópska matargerð. Notast er við bestu hráefnin sem fást hverju sinni. Veitingastaðurinn var opnaður í desember og segir Ómar Stefánsson yfirmatreiðslumaður að matseðillinn sé í stöðugri þróun og uppfærður reglulega til að halda honum spennandi og ferskum.