Þetta næringarríka og seðjandi bananabrauð er fullkomið í nestisboxið. Það er svolítið hægt að leika sér með hráefnið eftir smekk og skipta til dæmis þurrkuðu trönuberjunum út fyrir döðlur eða rúsínur. Sömuleiðis mætti skipta valhnetunum út fyrir pekanhnetur. Svo er alltaf dásamlega gott að bæta súkkulaðispænum í bananabrauðið, það er um að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn.