Kristín Morthens myndlistarkona og Gunnar Kristinsson smiður búa í gamalli verkamannaíbúð í Vesturbæ ásamt dóttur sinni, Máneyju, sem varð eins árs síðastliðinn febrúar. Parið keypti sér þessa fyrstu íbúð saman árið 2020 en ákvað að bíða með framkvæmdir til betri tíma. Nú er þeim lokið og er fjölskyldan alsæl með útkomuna. Birtan og sköpunarkrafturinn einkennir svo sannarlega þessa fögru íbúð í Vesturbænum.